Kauphöllin hefur að höfðu samráði við Fjármálaeftirlitið samþykkt framkomna beiðni skilanefndar Kaupþings banka hf., dagsett 15. janúar 2009, um töku hlutabréfa félagsins úr viðskiptum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en hlutabréfin verða tekin úr viðskiptum við lok viðskipta á morgun.

Hlutabréf Landsbankans og Glitnis (gömlu bankanna) voru tekin úr viðskiptum fyrir áramót