Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,6% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 3.115 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 5,9% í gær og hélt áfram að lækka strax við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 4,7 milljarðar króna og þar af eru um 3,3 milljarður króna með bréf í Landsbankanum en mikil viðskipti hafa verið með bréf í bankanum í morgun.

Þá er velta fyrir um 920 milljónir með bréf í Kaupþingi en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan stendur í stað það sem af er morgni og er gengisvísitalan nú 206,5 stig.