Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1,4% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:45 í 3.843 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,7% í gær og hóf að lækka enn frekar strax við opnun í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en ekkert félag hefur hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er tæpir 1,4 milljarðar. Þar af eru tæpar 420 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ], tæpar 380 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] og um 350 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst í morgun eða um 1,1% og er gengisvísitalan nú 171,6 stig.