Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:50 í 4.210 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,5% í gær en hækkað strax við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 1,3 milljarðar en þar af eru tæpar 650 milljónir króna með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir tæpar 350 milljónir með bréf í Landsbankanum og fyrir um 140 milljónir í Glitni en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan heldur áfram að veikjast og hefur nú veikst um 0,4% í morgun. Gengisvísitalan er nú 182,2 stig.