Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,9% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 3.837 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% í gær en hefur hækkað jafnt og þétt frá opnun í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 6 milljarðar en þar af eru tæpar tæpir 5,2 milljarðar með bréf í Glitni [ GLB ] eins og áður hefur komið fram .

Þá er velta upp á rúmar 570 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og tæpar 90 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] en minn velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan heldur hins vegar áfram að veikjast með nokkrum hraða og hefur nú veikst um 0,8% frá því í morgun. Gengisvísitalan er nú 177,3 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis en hvern einasta dag í þessari viku hefur veiking krónunnar slegið met.