Hlutabréf hjá þýska íþróttaframleiðandanum Adidas hafa hækkað um 2,5% í dag en orðrómur hefur verið um hugsanlega yfirtöku helsta samkeppnisaðilans, Nike.

Reuters fréttastofan greinir frá þessu og hefur eftir viðmælenda sínum að hugsanlega verði slík yfirtaka ekki heimiluð þar sem bæði fyrirtækin séu það stór á mörkuðum.

Talsmenn Adidas hafa ekki viljað tjá sig við fjölmiðla.