Hlutabréf vestan hafs hækkuðu í verði í dag. Hagnaður U.S. Steel Corp. var framar væntingum og félagið hækkaði meira en það hefur gert í 7 ár í dag. Lækkun olíuverðs olli hækkun smásölufyrirtækja og flutningsfyrirtækja.

Nasdaq vísitalan hækkaði í dag um 2,5%. Dow Jones hækkaði um 2,4% og Standard & Poor´s hækkaði um 2,3%.

Olíuverð lækkaði í dag um 2,1% og kostar tunnan nú 122,1 Bandaríkjadal.