Hlutabréf hækkuðu í Japan og Hong Kong í dag í kjölfar töluverðrar hækkunar á Bandaríkjamarkaði í gær, en bréf lækkuðu lítillega í Shanghæ. Nikkei í Japan hækkaði um 1,7% og Hang Seng í Hong Kong um 0,7%. Úrvalsvísitalan í Shanghæ lækkaði um 0,2%.

Dagurinn í Evrópu byrjaði með talsverðum hækkunum um alla álfu. Væntingar eru um vaxtalækkun Englandsbanka í dag um 25 punkta í 5,50%, að því er fram kemur á DowJones fréttaveitunni.