DJ Asia-Pacific hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,5% í dag eftir lækkun í Japan en hækkun á mörkuðum í Kína. Hækkunin í Hong Kong nam rúmum 3% og leiddu bankar hækkanir. HSBC hafði í gær lækkað niður í lægsta gildi frá árinu 1995 en hækkaði nú um tæp 14%. Hlutabréf í Evrópu hafa hækkað um 0,4% þegar þetta er skrifað, mælt með Euronext 100 vísitölunni.