Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum hækkuðu talsvert í dag. Helstu vísitölur voru á svipuðu róli og hækkuðu allar um 1,7-1,8%. Líklegt er að tilkynning skuldabréfatryggingarfélagsins MBIA um að það telji sig ekki missa AAA lánshæfiseinkunnina hafi haft jákvæð áhrif.