Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 1,1% frá opnun Kauphallarinnar.

Spron [ SPRON ] hefur hækkað mest fyrirtækja eða um 4,5%. Þá hefur Exista [ EXISTA ] hækkað um 2,9% og Eimskipafélag Íslands [ HFEIM ] um 2,1%.

Aðeins tvö fyrirtæki hafa lækkað. Föroya banki [ FO-BANK ] hefur lækkað um 0,7% og Össur [ OSSR ] um 0,5%.

Velta með hlutabréf er tæplega 1,7 milljarður.