Hlutbréf hafa hækkað á mörkuðum í Evrópu það sem af er degi og hefur FTSEurofirst vísitalan hækkað um 0,5% í morgun.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan hækkað um 0,2% á meðan AEX vísitalan hefur hækkað um 0,7%. Í Frankfurt hefur DAX vísitalan hækkað um 0,6% og í París hefur CAC 40 vísitalan hækkað um 1%.

Í Osló hefur OBX vísitalan hækkað um 0,6% en í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan lækkað um 0,2% og er það einn af fáum stöðum í Evrópu þar sem bréf hafa lækkað.