Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,6% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 4.340 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir einstakra félaga en ekkert félag hefur lækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er lítil eða aðeins um 320 milljónir. Þar af eru um 90 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 75 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] og tæplega annað eins með bréf í Glitni [ GLB ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst í morgun um 0,2% en gengisvísitalan er nú 157,2 stig.