Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,7% frá því að opnað var fyrir viðskipti kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 661 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,3% í gær og hafði þannig hækkað tvo daga í röð.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Aðeins hafa farið fram 15 viðskipti með hlutabréf í morgun og er heildarvelta þeirra um 8 milljónir króna.

Þar af eru 5 milljónir með bréf í Marel en í morgun fóru fram stök viðskipti í félaginu fyrir rétt rúmar 4,9 milljónir króna. Velta með bréf í Marel ber af það sem af er viku og er um 132 milljónir króna.

Þá er velta fyrir tæpar 1,8 milljónir með bréf í Össur og tæpa milljón með bréf í Icelandair Group.