Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,1% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 3.433 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 16,6% í gær en tók að hækka lítillega við opnun markaða í morgun. Þó hefur lítillega dregið úr þeirri hækkun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en athygli vekur að bréf í Glitni hafa hækkað um 9,9% í morgun en eins og fram hefur komið lækkaði gengi þeirra um 71% í gær.

Velta með hlutabréf er 7 milljarðar króna og þar af eru um 5,6 milljarðar króna með bréf í Landsbankanum en í morgun fóru fram mikil viðskipti með bréf í félaginu.

Þá er velta fyrir um 950 milljónir með bréf í Kaupþingi og um 250 milljónir með bréf í Straum en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst nokkuð það sem af er degi eða um 2,3% og er gengisvísitalan nú 201,3 stig. Þetta er í fyrsta skipti sem gengisvísitalan fer yfir 200 stig.