Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,8% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 4.218 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,5% í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 860 milljónir. Þar af eru tæpar 270 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 215 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og um 125 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur styrkst í morgun um 0,4% og er gengisvísitalan nú 159,2 stig.