Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,8% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 4.535 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög hafa lækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er um 940 milljónir en þar af eru um 280 milljónir með bréf í Kaupþing, 210 milljónir með bréf í Glitni og 190 milljónir með bréf í Bakkavör.

Krónan hefur styrkst nokkuð hratt í morgun eða um 1,2% og stendur gengisvísitalan nú í 165,9 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.