Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,4% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:30 í 4.225 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Straumur [ STRB ] hefur lækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er sáralítil eða tæpar 160 milljónir. Þar af eru rúmar 55 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], um 35 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ], 30 milljónir með bréf í Marel [ MARL ] og rúmlega 25 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst nokkuð eða um 1% frá opnum gjaldeyrismarkaða og er gengisvísitalan nú 157,1 stig.