Í tengslum við skuldauppgjör Framleiðenda ehf. við Landsbanka Íslands framselur félagið hlutabréf sín í Alfesca hf. að nafnverði kr. 90.351.871 til Regins hf, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Miðað við lokagengi Alfesca, 4,2 krónur á hlut, má ætla að verðmæti viðskiptanna nemi um 380 milljónum króna.

Aðalsteinn Ingólfsson er stjórnarmaður í Framleiðendum ehf. og varaformaður stjórnar Alfesca hf.