Hlutabréf í Asíu hækkuðu í dag og hafa ekki verið hærri í tvær vikur að sögn Bloomber fréttaveitunnar en MSCI Kyrrahafs vísitalan hækkaði í dag um 1,3%.

Í Japan hækkaði Nikkei vísitalan um 0,9%, í Singapúr hækkaði Straits vísitalan um 0,4% og í Ástralílu hækkaði S&P 200 vísitalan um 0,3%.

Mesta hækkunin varð þó í Suður Kóreu þar sem Kospi vísitalan hækkaði um 2,3%.

Í Hong Kong lækkaði þó Hang Seng vísitalan um 0,1% og í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 0,15%.