Hlutabréf lækkuðu töluvert í Asíu í dag en það voru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins að sögn Bloomberg fréttaveitunar.

MSCI Kyrrahafsvísitalan lækkaði um 1,9% og hefur ekki verið lægri í rúm tvö ár eða frá því í lok júlí 2006. Vísitalan hefur nú lækkað um 22% það sem af er þessu ári.

Bankar og fjármálafyrirtæki innan vísitölunnar lækkuðu um 2,2% í dag og hafa lækkað um 27% það sem af er ári samkvæmt heimildum Bloomberg.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 2,3%, í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 1,5% og í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 1,6%.

Í Kína hækkaði CSI 300 vísitalan óvænt um 1,5% en í Ástralíu lækkaði S&P 200 vísitalan um 2,4%.