Hlutabréf í Asíu hækkuðu annan daginn í röð í dag, að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

Vísitalan DJ Pacific sem mælir hlutabréfaverð í Asíu, hækkaði um 1,8% og japanska vísitalan Nikkei 300 hækkaði um 2,9%.

Kínverska vísitalan Hang Seng stóð í stað.

VN Index vísitalan í Vietnam lækkaði um 2,8%, samkvæmt upplýsingum frá Dow Jones.