Hlutabréf í Asíu hækkuðu í verði í dag, í kjölfar stýrivaxtalækkunar bandaríska seðlabankans í gær. MSCI Asia Pacific vísitalan hafði bætt við sig 2,8% rétt fyrir lok viðskiptadags í Tókýó, eftir að hafa lækkað um 10% á tveimur dögum. Nikkei vísitalan japanska hækkaði um 2% og Hang Seng vísitalan í Hong Kong um 5,3%.