Helstu hlutabréfamarkaðir í Asíu hækkuðu í gær. Bloomberg telur ástæðuna vera lækkandi olíuverð og vangaveltur um að lánsfjárkrísan muni réna.

Japanska vísitalan Nikkei 300 hækkaði um 1%, Hang Seng vísitalan í Hong Kong hækkaði um 2,4%, Singapore Straits Time vísitalan í Singapúr hækkaði um 1,3%.