Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa lækkað það sem af er morgni. Markaðir í Evróup voru einnig rauðir í gær eftir hækkanir undanfarið í kjölfar lausnar á lánavanda Grikkja.

Hlutabréfavísitalan FTSE 100 lækkaði um 0,29%, þýska vísitalan DAX hefur lækkað um 0,58%, franska vísitalan CAC 40 hefur lækkað um 0,21% Stoxx Europe 600 hefur lækkað um 0,51% og Europe Dow hefur lækkað um 0,03%.