Hlutabréf í Icelandair Group hafa hækkað um rúmlega 11% það sem af er degi í Kauphöll Íslands. Gengi bréfanna stendur í 3,61 krónum á hlut (kl 13.10). Velta með bréf félagsins í dag er rúmlega 130 milljónir.

Nýir hlutir í Icelandair Group voru teknir til viðskipta í gær en hlutafjárútboði lauk 23. desember. Útboðsgengi var 2,5 krónur á hlut.

Icelandair Group samdi við Saga fjárfestingarbanka og Landsbankann um viðskiptavakt á hlutabréfum í félaginu.