Gengi hlutabréfa Icelandair Group hækkaði um 0,35% í viðskiptum upp á sex milljónir króna í dag. Þetta er mesta hækkun dagsins. Gengi bréfa í flugrekstrarfélaginu stendur nú í 5,69 krónum á hlut sem er með hærra móti síðastliðin þrjú ár.

Aðeins eitt annað félag fór upp á markaðnum í dag. Það var gengi hlutabréfa í Högum, sem hækkaði um 0,29%. Gengi bréfa í félaginu stendur nú í 17,4 krónum á hlut.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,10% og stendur vísitalan í 995,99 stigum.