Hlutabréf Icelandair hafa hækkað mikið það sem af er degi. Nemur hækkunin 5,45% í 360 milljóna króna viðskiptum.

Snemma í morgun var tilkynnt um að samningar hafi náðst milli félagsins og flugmanna. Efni samningsins hefur ekki verið opinberað.

Icelandair sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem félagið segir að kostnaður vegna vinnustöðvunar og yfirvinnubanns liggi ekki fyrir.