Hlutabréf í sportvörufyrirtækinu JJB Sports hafa lækkað um 20% í kauphöllinni í London í dag. Félagið var eitt sinn í eigu Existu.

JJB Sports birti sölutölur fyrir tímabilið 27. september til 7. nóvember sem sýndu 13,1% söluaukningu. Þær tölur ollu hinsvegar vonbrigðum. Félagið sagði í tilkynningu að afkoma ársins sé nú háð því hvernig gengur að selja íþróttavörurnar fyrir jólin.