Hlutabréf Kaupþings banka hækkuðu lítillega í dag, eða um 0,6% en bréf annarra banka lækkuðu.

Hlutabréf Landsbankans lækkuðu um 1,17% og var síðasta viðskiptagengi 24,50. Bréf Glitnis lækkuðu um 0,55% og Straums Burðaráss um 0,57%.

Vísitala aðallista Kauphallarinnar var nær óbreytt en þó 0,16% lægri en í gær. Í heild námu hlutaberéfaviðskipti liðlega 3,1 milljarði króna.

Mesta hækkun dagsins var á bréfum TM eða 2,41% en þar að baki eru sáralítil viðskipti. Hlutir í Hampiðjunni, Icelandic Group og Marel hækkuðu yfir 1% en viðskiptin með bréfin voru lítil.