Hlutabréf lækkuðu flestum hlutabréfamörkuðum í Evrópu í dag en að sögn Reuters fréttastofunnar voru það helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins.

FTSE 300 vísitalan, sem mælir helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu, lækkaði um 0,9% og hefur nú lækkað tíu af síðustu ellefu viðskiptadögum. Þess utan hefur hún ekki verið lægri í um tvo mánuði.

Þrátt fyrir hækkun á olíuverð hafa olíu- og orkufyrirtæki lækkað nokkuð í dag. Þannig lækkuðu félög á borð við Total, Shell, BG Group og ENI á bilinu 2,2% til 4,2%.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 0,8%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 1% en í Frankfurt hækkaði DAX vísitalan hins vegar um 0,5%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 0,7% og í Sviss lækkaði SMI vísitalan um 0,3%.

Í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan aftur á móti um 0,5%, í Stokkhólmi hækkaði OMXS vísitalan um 2,4% og í Osló hækkaði OBX vísitalan um 0,7%.