Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,7% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40í 4.385 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins 3 félög hafa hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er tæplega 1,1 milljarður en meirihluti viðskipta er með bréf í Landsbankanum eða um 650 milljónir. Þá er velta með hlutabréf í Kaupþing um 200 milljónir en nokkuð minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur verið á reiki í morgun. Við opnum gjaldeyrismarkaða styrktist hún örlítið en tók síðan að veikjast og veiktist um allt að 0,6%. Nú hefur krónan hins vegar styrkst nokkuð hratt eða um 1,2% og stendur gengisvísitalan í 160,6 stigum.