Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,7% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:30 í 3.074 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,4% á föstudaginn og hélt áfram að lækka við opnun markaða í morgun þó lækkunin sé hvergi nærri sú sama og sést hefur í Evrópu í dag.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Fyrir stundu voru viðskipti með fjármálafyrirtæki stöðvuð af fjármálaeftirlitinu.

Velta með hlutabréf er sáralítil eða um 590 milljónir króna og þar af eru tæpar 156 milljónir króna með bréf í Exista en þó aðeins í tveimur viðskiptum.

Þá er velta fyrir rúmar 100 milljónir með bréf í Össuri, um 70 milljónir í Straum og Kaupþingi en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst um 0,6% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og er gengisvísitalan nú 207,4 stig.