Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði örlítið þegar opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun en hefur aftur á móti lækkað síðan þá og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:45 í 4.249 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga en ekkert félag hefur hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er um 370 milljónir. Þar af eru rúmlega 130 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] og aðrar 130 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en töluvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst um 0,2% frá opnum gjaldeyrismarkaða og er gengisvísitalan nú í 151,8 stig.