Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,7% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 4.142 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% í gær og hóf að lækka enn frekar strax við opnun markaða í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Eik banki [ FO-EIK ] hefur hækkað í Kauphöllinni í morgun.

Velta með hlutabréf er um milljarður króna. Þar af eru tæpar 390 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 230 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] og um 180 milljónir með bréf í Straum [ STRB ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst um 0,2% í morgun og er gengisvísitalan nú 160,8 stig.