Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,6% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 4.162 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 3,3% í gær en lækkaði strax við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga. Aðeins tvö félög, Century Aluminum og Föroya banki hafa hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er um 1,5 milljarðar en þar af eru um 740 milljónir króna með bréf í Kaupþing.

Þá er velta fyrir rétt rúmar 300 milljónir með bréf í Landsbankanum og fyrir um 240 milljónir í Glitni en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan heldur veikst verulega í morgun eða um 2,2% og er gengisvísitalan nú 180 stig sem er nýtt met.