Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,3% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 4.196 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er um 450 milljónir. Þar af eru tæpar 210 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ], um 75 milljónir með bréf í Straum [ STRB ] og um 60 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst í morgun um 0,5% og er gengisvísitalan nú 159,9 stig.