Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 4.268 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,2% í gær en hefur lækkað jafnt og þétt frá opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Föroya banki hefur hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er um 950 milljónir og þar af eru rúmar 270 milljónir króna með bréf í Glitni og annað eins með bréf í Straum.

Þá er velta fyrir um 170 milljónir með bréf í Landsbankanum og um 150 milljónir í Kaupþing en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst það sem af er degi um 3% og er gengisvísitalan nú 183,8 stig.