Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 2,9% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:30 í 3.852 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,8% í síðustu viku og hóf að lækka enn frekar fljótlega eftir opnun í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en ekkert félag ehfur hækkað í morgun.

Þá hefur Eimskip [ HFEIM ] lækkað um 25% í morgun ef félagið lækkaði um rúm 35% í síðustu viku. Félagið hefur nú lækkað um 82,7% frá áramótum sé miðað við markaðsgengi þess nú.

Velta með hlutabréf er tæpir 1,2 milljarðar. Þar af eru rúmar 420 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], tæpar 300 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og tæpar 260 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst verulega í morgun eða um 1,8% og er gengisvísitalan nú 170,5 stig.