Hlutabréfamarkaðir lækkuðu í Asíu í dag og lækkaði MSCI Kyrrahafs vísitalan um 1%.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 1,1% og í Ástralíu lækkaði S&P 200 vísitalan um 0,6%. Aftur á móti hækkuðu Hang Seng vísitalan í Hong Kong um 0,9% og Straits vísitalan í Singapúr um 0,5%.

Það voru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins í Asíu en fjármálafyrirtæki telja um 2/3 af MSCI vísitölunni.