Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,14% í dag og stóð í 1.365,81 stigum við lokun markaðar, en heildarvelta í Kauphöllinni nam 4,7 milljörðum króna. Þar af var rúmlega 809 milljóna króna velta á hlutabréfamarkaði.

Þær voru rauðar tölurnar í Kauphöllinni en einungis þrjú félög hækkuðu í dag, Nýherji sem hækkaði mest, eða um 4,94%, Össur um 2,06% og loks Marel um 0,88%

Eimskip lækkaði mest í dag, eða um 1,34%.