Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1,5% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 4.056 stigum.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,2% í gær og hóf að lækka enn frekar strax við opnun markaða í morgun. Þetta er nú þriðji dagurinn í röð sem vísitalan lækkar.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Eik banki [ FO-EIK ] hefur hækkað í Kauphöllinni í morgun.

Velta með hlutabréf er um 1,5 milljarðar króna. Þar af eru rúmar 610 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], um 540 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og um 90 milljónir með bréf í Straum [ STRB ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst hratt í morgun eða um 2% og er gengisvísitalan nú 164,8 stig.