Kauphöllin hefur samþykkt beiðni Össurar hf. um töku hlutabréfa félagsins (auðkenni: OSSR) úr viðskiptum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en hlutabréfin verða tekin úr viðskiptum í Kauphöllinni við lok viðskipta þann 25. mars, 2011.

Aðalfundur Össurar samþykkti þann 4. mars sl. ákvörðun stjórnar um að óska eftir töku hlutabréfa félagsins úr viðskiptum í Kauphöllinni. Enn fremur hefur Össur tilkynnt Kauphöllinni að fari svo að Seðlabankinn muni ekki, í tilefni hækkunar hlutafjár í félaginu, veita viðkomandi hluthöfum undanþágu frá gjaldeyrisreglum til að afla sér erlends gjaldeyris til greiðslu fyrir hið nýja hlutafé, muni félagið taka við greiðslum í íslenskum krónum.

Hlutabréf Össurar verða þó aftur tekin til viðskipta þann 28. mars nk. en þau viðskipti byggjast á 23. gr. laga um kauphallir sem heimilar kauphöll að taka verðbréf til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði án samþykkis útgefanda hafi verðbréfin verið tekin til viðskipta á öðrum skipulegum verðbréfamarkaði á Evrópska efnahagssvæðinu.

„Ákvörðun Kauphallarinnar um að taka hlutabréf Össurar til viðskipta að eigin frumkvæði er tekin með hliðsjón af þeim gjaldeyrishöftum sem nú eru við lýði á Íslandi,“ segir í tilkynningu frá Kauphöllinni.

„Gjaldeyrishöftin þýða að Kauphöllin er eini skipulegi verðbréfamarkaðurinn þar sem íslenskir fjárfestar, þ.m.t. íslenskir hluthafar Össurar, geta keypt og selt hlutabréf í félaginu án takmarkana.“

Fram kemur að viðskipti með hlutabréf Össurar munu lúta sömu reglum og eftirliti og önnur viðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni. Samkvæmt lögum um kauphallir er Össuri ekki skylt að sinna upplýsingaskyldu gagnvart Kauphöllinni enda er taka til viðskipta ekki gerð með samþykki félagsins. Félagið sinnir hins vegar upplýsingaskyldu gagnvart NASDAQ OMX kauphöllinni í Kaupmannahöfn.