Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] stendur í stað frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 4.211 stigum. Vísitalan hefur dansað við núllið frá opnun en hækkað mest um 0,2%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er sáralítil eða aðeins um 250 milljónir. Þar af eru tæpar 94 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ], 65 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og tæpar 37 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst um 0,6% frá opnum gjaldeyrismarkaða og er gengisvísitalan nú 158,9 stig.