Helstu hlutabréfavísitölur hafa hækkað frá því að markaðir opnuðu í Evrópu í morgun.

Þýska vísitalan DAX hefur hækkað um 0,57% í morgun og FTSE hefur hækkað um 0,39%. Ítalska vísitalan FTSE MIB hefur hækkað um tæpt 1%.

Samkvæmt Wall Street Journal er enn mikil hætta á að skuldavandinn aukist enn í Evrópu á næstu vikum.