Hlutabréfamarkaðurinn fer vel af stað það. Veltan er töluvert meiri en verið hefur á sama tíma undanfarna mánuði og nokkuð um falleg græn félögum.
Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,6% og er 4.875 stig um klukkan ellefu, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.
Breska vísitalan FTSE100 hefur hækkað um 1,5%, danska vísitalan OMXC hefur hækkað um 0,9%, norska vísitalan OBX hefur hækkað um 1,4% og sænska vísitalan OMXS hefur hækkað um 1%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.
Bakkavör Group [ BAKK ] hefur hækkað um 4,4%, FL Group [ FL ] hefur hækkað um 4%, Spron [ SPRON ] hefur hækkað um 3,6%, Föroya banki [ FO-BANK ] hefur hækkað um 3,4% og Exista [ EXISTA ] hefur hækkað um 2,6%.
Century Aluminium [ CENX ] hefur lækkað um 5,7%, Skipti hefur lækkað um 5,2% og Eimskip [ HFEIM ] hefur lækkað 0,5%.