Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,31% í dag og endaði í 5.370 stigum. Ekki urðu miklar breytingar á verði einstakra félaga. Mesta hækkunin varð á bréfum Straums ? Burðaráss eða 1,3%. Mesta lækkunin varð á bréfum Íslandsbanka og Mosiac Fashions eða 0,6%. Mest viðskipti urðu með bréf Kaupþing banka eða 875 milljónir króna.