Heildarviðskipti með hlutabréf í Kauphöll Íslands námu 5.540 milljónum í febrúar eða 277 milljónum á dag. Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf í janúar 2.880 milljónum eða 137 milljónum á dag, samkvæmt yfirliti Kauphallar Íslands. Velta hlutabréfa í febrúar tvöfaldaðist því frá fyrri mánuði.

Mest voru viðskipti með bréf Icelandair 3.015 milljónir, bréf Marels 2.147 milljónir og bréf Össurar 216 milljónir. Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði lítillega á milli mánaða (0,1%) og stendur í 1006 stigum.

Heildarviðskipti með skuldabréf námu 194 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 9,7 milljarða veltu á dag samanborið við 9,6 milljarða veltu á dag í janúarmánuði. Mest voru viðskipti með ríkisbréf 134 milljarðar en viðskipti með íbúðarbréf námu 54 milljörðum.

“Aukin gróska er á hlutabréfamarkaði, viðskipti eru að glæðast og félög sýna skráningu á markað áhuga. Þessi þróun gefur fyrirtækjum sem huga að innkomu á hlutabréfamarkaðinn góð fyrirheit um það sem koma skal”, segir Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland, í tilkynningu.

Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 43,2% (37% á árinu), Íslandsbanki með 21,8% (24,7% á árinu) og Saga Fjárfestingarbanki með 9,4% (10,5% á árinu).

Á skuldabréfamarkaði var MP Banki með mestu hlutdeildina 28,1% (26,8% á árinu), Íslandsbanki með 23,0% (23,1% á árinu) og Landsbankinn með 15,7% (19,4% á árinu).