Helstu hlutabréfavísitölur í Asíu og Evrópu hækkuðu lítillega við þegar markaðir voru opnaðir í morgun. Nokkur ró virðist komin á hlutabréfamarkaði, en fjárfestar fara sér þó að engu óðslega. Angela Merkel og Nicolas Sarkosy hittast á morgun og er beðið eftir niðurstöðum þess fundar með eftirvæntingu.