Hlutabréfavísitalan í Kauphöllinni í Osló hefur hækkað mest af hlutabréfavísitölum í kauphöllum Norðurlandanna nú þegar fyrsti fjórðungur ársins er við það að ljúka.

Aðalvísitölur kauphallanna hafa allar hækkað en mest hafa hlutabréf í Noregi hækkað, eða um 16%, mælt í heimamynt. Sú hækkun er að stórum hluta til vegna olíuverðshækkana en auk þess hafa hlutabréf í laxeldisfyrirtækjum hækkað mikið vegna afurðaverðsþróunar undanfarnar vikur. Hlutabréf í Kauphöllinni í Helsinki hafa einnig hækkað myndarlega, eða um 14% frá áramótum.

Hlutabréfaverð í kauphöllum í Stokkhólmi og Reykjavík hefur auk þess hækkað vel á árinu, um 10% í Svíþjóð og 9% á Íslandi.

Slökust hefur ávöxtunin verið í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn, hlutabréf þar hafa hækkað um 4% frá áramótum. Líklegt er að hlutabréfaverð breytist talsvert í seinnihluta apríl og byrjun maí þegar uppgjörstímabil fyrir fyrsta ársfjórðung hefst.

Til upprifjunar hækkuðu hlutabréfavísitölurnar í kauphöllunum á Norðurlöndunum mjög myndarlega á árinu 2005, í öllum tilfellum yfir 30% en mest á Íslandi eða um rétt ríflega 60%.